Friðun skiptir engu máli

Geir vill ekki friða meira en nauðsynlega þarf, því það er peningur í þessu. Af hverju að fórna fullkomlega nýtanlegri "auðlind"? Ekki að það skipti nokkru máli hvort Þjórsárver séu eða verði friðuð. landsvirkjun er með fullkomna áætlun, samkvæmt þessari grein á Náttúran.is. Ef gýs í Bárðarbungu mun hún hleypa 5500 rúmmetrum á sekúndu inn í Þjórsárver svo að stíflurnar fögru skemmist ekki. Það segir sig sjálft að eftir slíkar hörmungar er ekkert eftir og hægt að virkja allt svæðið. Þetta er fullkomið, því þetta voru náttúruhamfarir og ekki okkur að kenna.

Myndin er af náttúran.is og fylgir greininni sem ég vitna í.


mbl.is Mun ekki friða meira af Þjórsárverum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvað skyldi þurfa til að vekja þessa undarlegu skepnu almenning til vitundar um það sem er að gerast fyrir framan nefið á honum?

Eva Hauksdóttir (IP-tala skráð) 14.7.2008 kl. 20:59

2 identicon

Takk fyrir að vekja athygli á þessu.

alva (IP-tala skráð) 14.7.2008 kl. 23:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband