Betri er kartafla en retta

Það er nú gott að McCain bjóði fram aðstoð sína. Kannski hann geti hjálpað Obama að læra biblíuna utan að eins og Palin. Hann getur þá kvótað biblíuvers meðan hann drepur, eins og gaukurinn í Tarantúllu myndinni. Kannski hann geti hjálpað Obama að hætta að reykja. Það virðist nefninlega vera hans stærsti galli.

Sem gerir hann að fjandi góðum forseta. Ef blysin eru hans stærsta vandamál er hann svo nálægt fullkomnun að framtíðin getur jafnvel talist björt. Lítil hætta á því, en það má láta sig dreyma.

Annars var ég að hugsa, af gefnu tilefni. Allt þetta anti-reykvæl og fólk sem er bara happí með Geira og Árna af því áfengi hækkar. Það er eins og fólk trúi því að áfengi og tóbak drepi alla sem deyja. Það er bara ekki svo. Held ég. Maður hefur þá allavega gaman af meðan þetta endist.

Kannski er ég ekki marktækur. Ég er að falla nett fyrir Film Noir, myndunum þar sem allir reykja og drekka eins og enginn sé morgundagurinn. Var alltaf hrifinn af dæminu, en nú er ég alveg að missa mig. Sá Casablanca um daginn eins og frægt er varla orðið, Kiss Me Deadly, The Big Sleep. Ég verð bara að viðurkenna að nútímaskvísurnar, edrú og reyklausar eru ansi litlausar miðað við Ingrid og hennar stöllur. Og voru þær þó í svart hvítu.

En hvað um það. Skál. Á einhver eld? 


mbl.is McCain heitir Obama aðstoð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Einar Steinsson

...það var á þeim tíma sem konur máttu hafa mjúkar línur en þurftur ekki að líta út eins og svangir 14 ára fermingarstrákar....

Einar Steinsson, 15.12.2008 kl. 07:21

2 Smámynd: halkatla

Þú gætir reykt heilann pakka, ef ekki tvo, á þeim tíma sem það tæki mig að rétt byrja að telja upp gallana hans Obama, en hvað er svosem að marka mig, ég var Palinisti

halkatla, 17.12.2008 kl. 12:51

3 Smámynd: Villi Asgeirsson

Hmmm..... ókei, byrjaðu bara. Ekki að ég sé neinn Obama aðdáandi, en ég er feginn að heimurinn verður ekki imPalined í bráð.

Villi Asgeirsson, 18.12.2008 kl. 09:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband