Getur það verið?

Ég er ekkert hissa. Mér hefur sjálfum verið meinilla við þá frá því ég man eftir mér. Amma Mats (barnsins Krustyvor) keypti risastóran trúð handa honum en varð að skila honur, selja, gefa... allavega koma honum í burtu. Mamma Mats var ekki á því að kvikyndið kæmi hér inn fyrir dyr.David Bowie

Trúðar eru líka oftast sýndir sem illir og kvikyndislegir eða sem misheppnaðir karlar i kvikmyndum. Frægustu trúðarnir eru sennilega Krusty úr Simpsons, the It úr bók og mynd eftir Stephen King og Ronald McDonald, sem ég hafði aldrei gaman af.

Svo klæddi David Bowie sig upp sem trúð á plötunni Scary Monsters (and Super Creeps). Nafnið segir allt.

Það verður þó að gefa þeim að í sirkus, þar sem þeir eiga heima, eru þeir ekki svo slæmir. Trúður þarf að kunna allt. Ég held að besta fimleikafólk í heimi séu trúðar. En út fyrir sirkusinn eiga þeir ekkert erindi.

---

Það er svo af myndinni að frétta að ég verð kominn með íslenskan bankareikning á næstu dögum. Ég er búinn að fá nýju útgáfuna af Black Sand Theme. Hún sómir sér vel í myndinni. Þar sem ég var að fikta hvort eð er, fór ég í að laga til litina. Ég held að þó ég hafi ekkert klippt, verði þetta allt önnur mynd. Þetta var dropinn, neistinn "the something" sem hún þurfti. Hún ætti að vera tilbúin í vikunni. Ég vonast til að geta sett diskana í póst í næstu viku. 


mbl.is Börn eru hrædd við trúða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Ég ætla panta eina með sænskum texta

Gunnar Helgi Eysteinsson, 16.1.2008 kl. 21:45

2 Smámynd: Villi Asgeirsson

Svo minnist ég ekki einu sinni á það. Myndin er textuð á fjögur tungumál, íslensku, ensku, hollensku og nú var sænska að bætast við, þökk sé Gunnari Svíafara.

Villi Asgeirsson, 17.1.2008 kl. 04:38

3 identicon

Ég get ekki verið meira sammála þessari frétt. Það er bara til tvennt viðbjóðslegt í þessum heimi, og það eru trúðar og álar(...hrollur!)

Takk fyrir að segja til hamingju með daginn, er ekki Bowie líka 12.? 

Ásdís (IP-tala skráð) 17.1.2008 kl. 21:28

4 Smámynd: Villi Asgeirsson

Takk esskan, fyrir að segja takk. Bowie er 8. eins og Elvis.

Villi Asgeirsson, 18.1.2008 kl. 12:20

5 identicon

Sonur minn fékk róbó-hund í jólagjöf.  Hann er nokkuð hræddur við hann og vill bara að það sé slökkt á honum.

Held að þetta sýni best innsæi barna. 

Gullvagninn (IP-tala skráð) 19.1.2008 kl. 10:36

6 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Sá þessa frétt á sínum tíma. Get ekki sagt hvort mínir strákar voru hræddir við trúða. Man að mér þótti þessir jokers með skrínu húfurnar forvitnilegir þegar ég var lítil.

Jórunn Sigurbergsdóttir , 19.1.2008 kl. 20:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband