Þar til rétt niðurstaða næst

Kosningar innan ESB eru athyglisverðar. Þótt fólkið sé yfirleitt frekar á móti frekari samruna, evrunni, stjórnarskránni, virðast embættismenn eiga sér þann draum að sameina Evrópu. Koma öllum undir sama hatt. Til að geta stjórnað okkur plebbunum betur? Fæst lönd þar sem evran var tekin upp buðu fólkinu að segja sína skoðun. Þingið ákvað fyrir lýðinn. Flest lönd þar sem fólk fékk að kjósa, höfnuðu henni. Þá er kosið aftur og aftur þangað til rétt niðurstaða fæst, og svo aldrei meir.

Sama með evrópsku stjórnarskrána. Þegar fólkið hafnaði þessum doðranti sem er á stærð við símaskrá, var nokkrum setningum breytt lítillega, nafninu breytt í Lissabon-sáttmálann og kosið upp á nýtt. Og aftur. Og aftur. Þangað til pakkið drullast til að segja já. Og svo ekki meir.

Evrópskt lýðræði er að spyrja aftur og aftur þar til "rétta" niðurstaðan fæst. Svo ekki meir.


mbl.is Líklegt að Írar samþykki Lissabon
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ef ég skil þetta mál rétt, þá tókst þessum snillingum að fara framhjá kosningum allra þjóða, nema Íra, með því að breyta nafni doðrantsins úr "stjórnarskrá" yfir í "sáttmála".  Þá gátu þingin samþykkt doðrantinn sama hvað plebbarnir segja.

Gullvagninn (IP-tala skráð) 28.9.2009 kl. 07:26

2 Smámynd: Villi Asgeirsson

Rétt er það. Þetta ser "sátt"máli, ekki stjórnarskrá. Írarnir vilja endilega kjósa, svo þeir gera það bara aftur og aftur þangað til rétt niðurstaða hefur náðst. En jú, þetta er sama plaggið.

Villi Asgeirsson, 28.9.2009 kl. 08:24

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband