28.11.2006 | 08:22
Stuttmynd - Fyrsta sýnishornið
Þetta var fyrsta sýnishornið sem ég setti á netið. Þetta átti ekki að verða neitt, ég var að vinna við að klippa draum sem átti að vera í myndinni. Ég ákvað svo að setja þetta á heimasíðuna svo að samstarfsaðilar gætu séð hvað ég væri að gera. Síðan hefur komið í ljós að sumum finnst þetta flottara en seinna hornið, sem kom reyndar fyrst inn á bloggsíðuna. Sýnir bara hvað maður getur haft litla tilfinningu fyrir eigin verkum.
Það er einmitt þess vegna sem að ég hef látið annan klippara hafa myndina. Best að fá óháðan aðila til að klára dæmið. Nú er ég að bíða eftir tónlistinni og þá er hægt að klára dæmið. Við erum sem sagt að komast á endasprettinn. Ég læt vita þegar nær dregur.
PS. Eftir að hafa horft á hornið hér á síðunni verð ég að segja að gæðin eru ekki yfirdrifin. Ég reyni að laga það, en læt þetta þó standa þangað til.
Meginflokkur: Kvikmyndir | Aukaflokkar: Bloggar, Menning og listir, Sjónvarp | Breytt s.d. kl. 08:27 | Facebook
Athugasemdir
gott efni
Ólafur fannberg, 28.11.2006 kl. 09:00
Hlakka til að sjá myndina í heild.
Jórunn Sigurbergsdóttir , 28.11.2006 kl. 12:11
Það verður gaman að sjá myndina í heild
Gunnar Helgi Eysteinsson, 28.11.2006 kl. 17:46
Mjög flott...
Bíð spennt eftir heildinni!
B
Birgitta, 29.11.2006 kl. 20:06
Ég fæ ekkert að sjá :(
gerður rósa gunnarsdóttir, 29.11.2006 kl. 22:16
Bíddu bara. Þegar þú ert komin með ADSL geturðu alveg séð hana.
Villi Asgeirsson, 30.11.2006 kl. 07:05
kemur meira
Ólafur fannberg, 30.11.2006 kl. 20:35
Frábært sýnishorn, gaman að fá að fylgjast með því sem þú ert að gera !!Sorry hef ekkert verið á bloggrúntinum undanfarið, nóg að gera hjá mér eins og þér sé ég. En það byrjaði bar með smá andlitslyftingu á eldhúsinu og erum komin alveg óvert út í stórframkvæmdir á baðinu, svona geras slysin !! Hlakka til að sjá restina af myndini
Kær kveðja Sigrún.
Sigrún Friðriksdóttir, 1.12.2006 kl. 00:50
lofar mjööög góðu
frú heimsmeistari og félagar, 1.12.2006 kl. 23:00
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.