31.7.2008 | 09:33
Rökræður um alls ekki neitt
Reynisfjara er yndislegur staður. Ég kom með hóp fólks þangað í ágúst 2006 til að taka upp atriði í stuttmynd. Þar á meðal voru þrír útlendingar. Öllum fannst þetta stórmerkilegur staður. Ég kom svo aftur viku seinna með ferðalang. Það var brennandi heitt, heiðskýrt og landslagið sérstakt. Jafn sérstakt og fyrri daginn, en allt öðruvísi því veðrið var allt annað. Myndirnar eru teknar í blíðviðrinu í lok ágúst 2006. Fleiri myndir eru í albúmi á síðunni.
Ég vissi ekki að Reynisfjara gæti verið svona varasöm, enda er ekkert sem varar mann við. Ég komst að því nokkrum mánuðum seinna þegar einhver sogaðist út. Það sem ég er ekki alveg að fatta er þetta vesen með hver á að borga eitthvað skilti. Meðan fólk er að drepast eða næstum því drepast er fólk að rífast yfir því hver eigi að borga fyrir skilti. Nú veit ég ekki hvað skilti kostar, en fyrst það er hægt að planta þeim niður við öll gatnamót og víðar, geta þau ekki verið mikið dýrari en lítið álver.
Hættum að væla og hendum þessu upp.
Vilja kosta skilti í Reynisfjöru | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Ferðalög | Aukaflokkar: Bloggar, Stjórnmál og samfélag, Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 10:09 | Facebook
Athugasemdir
Sammála
Eva Benjamínsdóttir, 31.7.2008 kl. 14:41
Verst að þó þau væru myndi enginn lesa þau.
Einar Þór Strand, 31.7.2008 kl. 20:47
Kannski það, en þá er allavega búið að vara við hættunni. Annars sýnist mér umræðan ekki vera um hvort eigi að koma skilti, heldur hver á að borg 3000 kallinn, eða hvað það kostar að setja þetta niður.
Villi Asgeirsson, 31.7.2008 kl. 21:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.