2.7.2008 | 03:22
Aukahíp
Meira af Uriah Heep dæminu. Eins og ég sagði í athugasemd í gær, get ég sennilega lekið meiri upplýsingum hér en á enskumælandi síðu. Þetta er auðvitað allt saman á voðalega viðkvæmu stigi, svo ég segi ekki allt of mikið, en hér er það sem ég segi samt.
Á mánudag sendi ég þeim lista yfir það hvernig ég vil vinna verkið. Diskurinn ætti að vera í pappahulstri, þar sem þau eru mikið flottari. Venjulegu plasthulstrin eru svo ljót og cheap. Helst vil ég láta veglega bók, eða allavega bækling fylgja með. Ég bauðst til að koma á 2-3 hljómleika bara til að taka myndir svo við hefðum um nóg að velja.
Hljómsveitin er kraftmikil á sviði og ég vil að það sjáist í myndinni. Ekkert baksviðs bull, engir aðdáendur blaðrandi við dyrnar um hvað þeir eru æðislegir. Bara hrein orka frá upphafi til enda.
Svo er það aukaefnið. Ég kom með eftirfarandi hugmyndir. Örmynd þar sem hljómsveitin er sýnd baksviðs. Viðtal með spurningum sem aðdáendur hafa sett inn á síðuna þeirra á vikunum fyrir hljómleikana. Betlarasöngur, þar sem söngvarinn og gítarleikarinn spila lög sín á götum úti. Stutt mynd tekin upp í rútunni um það hvernig þeir ferðast milli borga. Svo er það spurning með að finna karaokebar þar sem eitthvað af þeirra tónlist er til boða og sjá hvað fólk segir ef þeir taka lagið. Fyrir hverja hljómleika er hljóðið prufað, svo það er um að gera að láta eitthvað af því fylgja með.
Spurning hvort maður nái ekki að búa til skemmtilega disk með svona efni.
Læt svo að lokum eitt lag fylgja með. Þetta er Gipsy af fyrstu plötunni, en tekið upp nýlega. Fyrir 2007 þó, því gamli trymbillinn er ennþá að berja bumbur. Hann hætti í ársbyrjun vegna liðagigtar, skilst mer.
Meginflokkur: Tónlist | Aukaflokkar: Bloggar, Kvikmyndir | Facebook
Athugasemdir
skemmtilega frumlegar hugmyndir... þetta verður örugglega magnað verk hjá þér:) mér finnst þetta svo spennandi að ég myndi jafnvel horfa á hann án þess að hafa verið mikið fyrir bandið... gangi þér vel að fá hugmyndirnar samþykktar og í framkvæmd
Birgitta Jónsdóttir, 2.7.2008 kl. 06:43
Birgitta, þú þarft ekkert að horfa ef þér leiðist. Verð samt að viðurkenna að ég var enginn sérstakur aðdáandi, en þeir náðu að grípa mig. Vonandi tekst mér að gera diskinn .annig að hann grípi fólk sem annars hefði farið á mis við þá.
Mick Box, gítarleikari og "eigandi" hljómsveitarinnar var að senda mér emil þar sem hann sagðist vera spenntur fyrir þessu og vonaði að allt færi vel. Þetta fer auðvitað allt gegn um umboðsmanninn, en ef aðalmaðurinn er að leggja blessun sína yfir verkefnið eru málin að líta vel út.
En um aukaefnið. Mér finnst jafn gaman að sjá skemmtilegt aukaefni og mér finnst leiðinlegt að sjá illa gert, eða ekkert efni. Annars á ég það til að fara of langt í fullkomnunaráráttunni. Kannski verður sett á mig bremsa, en það er vonandi að ég fái lausan tauminn og fái að búa til grip sem vert er að eiga. Oft eru gerðar heimildamyndir um hljómsveitirnar, en mér finnst það ekki eiga við hér. Ef á að búa til tveggja tíma mynd um sögu þeirra er það verkefni út af fyrir sig. Ég vildi hafa þetta þetta létt og skemmtilegt með smá húmor. Þannig virkuðu þeir á mig. Tónlistin er ekkert létt, en þeir eru það.
Villi Asgeirsson, 2.7.2008 kl. 19:25
Gangi þér vel með þetta, hljómar mjög svo spennandi.
alva (IP-tala skráð) 3.7.2008 kl. 00:34
Takk fyrir það, AKÆ. Það er ekki spurning að þetta er spennandi verkefni, enda er ég með þetta í hausnum allan daginn og nótt. Ég þekkti þessa hljómsveit lítið sem ekkert áður en þetta kom upp, en hef gaman af því að uppgötva þá. Ég leyfi lesendum bloggsins að fylgjast með framvindunni.
Villi Asgeirsson, 3.7.2008 kl. 14:18
Það verður spennandi að sjá framvinduna:)
Birgitta Jónsdóttir, 14.7.2008 kl. 07:58
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.