Til Íslands? Knopfler líka.

Þeir hafa aldrei komið til Íslands. Er ekki kominn tími á það?

Annars fór ég að sjá Mark Knopfler í Heineken Music Hall í gær. Hann var frábær, eins og búast mátti við. Lagavalið var flott, fannst mér. Hann var ekkert að ofgera Dire Straits efninu, en þar sem sólóplöturnar eru ekkert síðri, jafnvel betri, var það ekkert vandamál. Þetta byrjaði með 6-7 lögum af síðustu fjóru plötunum, svo kom Romeo and Juliet. Þá fóru þeir í jassaða Mark Knopfler með Guy Fletcher hægra meginpöbbastemningu. Undir lokin fékk sauðsvartur almúginn sem hefur ekki verið að taka eftir síðustu árin það sem þau vildu. Telegraph Road, Brothers in Arms, So Far Away og fleiri klassíkera. Hann slúttaðu þessu með Local Hero.

Spilamennskan var auðvitað fyrsta flokks, enda valinn maður í hverju horni. Hann gerði reyndar lítið úr sjálfum sér því hann er sá eini sem spilar bara á eitt hljóðfæri. Það gerir svo sem ekkert til því hann hefur þokkaleg tök á því.

Ég fór baksviðs eftir hljómleikana og hitti Guy Fletcher, höfund tónlistarinnar í Svörtum Sandi. Við sátum og ræddum málin í klukkutíma. Ég vissi að þetta var öðlingur, en bjóst ekki við að vera tekið eins vel og raunin var. Trommarinn, Danny Cummings, lét sjá sig og dældi gin og tónik í þá og bjór í mig. Hann er stórskemmtilegur náungi. Þegar hann spurði Miriam, konuna mína, hvað hún ynni við svaraði hún, I'm in fashion. Hann svaraði um hæl, ah, oh well, I'm out of fashion, but then your're young. Hún sagði, I've been doing it for 12 years. Oh? You started when you were 2? You are 14, right? Hinir komu svo undir lokin og það er ekki spurning að þetta eru ekki bara frábærir tónlistarmenn, þetta er stórskemmtilegt fólk sem gaman er að vera með. Ég hefði alveg örugglega getað farið með þeim á rúntinn um Amsterdam um nóttina, en ég þurfti að fara heim og passa barnið. Ég náði þó að taka í höndina á meistaranum sjálfum og þakka fyrir mig. Við það tækifæri fékk ég að heyra að hann var heillaður af tónlistinni sem Guy samdi fyrir mig. Þeir voru eitthvað að tala um að kíkja á hana við tækifæri. Guy er með disk, hann sér um það.

Eitt af því sem við ræddum um voru tónleikar á Íslandi. Þegar við minntumst á þetta sagði Cummings, já en það búa bara 30 manns á Íslandi. Ég svaraði að þeir fengju alveg örugglega 29 af þeim til að mæta. Við ræddum þetta þó í alvöru og þeir voru til í að skoða málið, sérstaklega eftir að þeir fréttu að listamenn á þeirra kaliber væru að koma. Þegar ég sagði þeim að Dylan væri að koma í sumar vildu þeir heyra meira.

Ef einhver hljómsveitainnflytjandi les þetta, endilega hafðu samband. Hver veit, kannski kemur Mark Knopfler til Íslands? Ekkert af því að bæta einum hljómleikum við þetta 95 daga ferðalag?


mbl.is Stones-banni aflétt í Blackpool
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Þeir eiga ábyggilega fullt af aðdáendum á íslandi (vonandi fleiri en 29)

Gunnar Helgi Eysteinsson, 31.3.2008 kl. 09:58

2 Smámynd: Villi Asgeirsson

Vonandi. Ætli þeir gætu ekki fyllt Höllina? Þeir voru allavega spenntir fyrir því að koma. Danny (trommari) er mikill aðdáandi skandinavískra mynda og menningar. Hann sagði mér að hann hefði elt allar sýningar á Bergman og fleirum í London. Hann minntist sérstaklega á að hafa séð Fanny & Alexander. Svo vildu þeir sjá íslenska landslagið.

Annars er hægt að lesa hér það sem Fletcher sjálfur segir um gærkvöldið. 

Villi Asgeirsson, 31.3.2008 kl. 10:14

3 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Þú sérð bara um þetta, Villi, og skipuleggur tónleika. Ég mæti pottþétt sem aðdáandi Knopflers! 

Lára Hanna Einarsdóttir, 31.3.2008 kl. 11:07

4 Smámynd: Sigrún Friðriksdóttir

Gaman að lesa um góða tónleika, og örugglega frábært að fá að hitta goðið sjálft

Sigrún Friðriksdóttir, 31.3.2008 kl. 11:25

5 Smámynd: Villi Asgeirsson

Sjáum til. Ég er allavega tilbúinn til að hjálpa ef einhver með reynslu af innflutningi býður sig fram. Eins og ferðin lítur út núna klára þeir í Bandaríkjunum í lok júlí. Er byrjun ágúst ekki tilvalin fyrir hljómleika? Kannski senda þá til eyja...

Villi Asgeirsson, 31.3.2008 kl. 12:39

6 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Þetta hefur verið ofsalega gaman hjá ykkur Miriam. Ég er bara svo gömul að ég veit ekkert um þessa gæja. En ég veit það var gaman. Bestu kveðjur.

Jórunn Sigurbergsdóttir , 31.3.2008 kl. 18:12

7 Smámynd: Sigrún Friðriksdóttir

Var að frétta í dag að tengdapabba var boðið á sína fyrstu tónleika þarna. Hann var alveg í skýjunum, þetta var 75 ára afmælisgjöf og nú er karlinn komin með bakteríuna :P

Sigrún Friðriksdóttir, 2.4.2008 kl. 21:04

8 Smámynd: Villi Asgeirsson

Þannig gerðist þetta með mig. Allir áttu Dire Straits plötur nema ég en þetta var fín tónlist. Ég fór á hljómleika fyrir 3-4 árum og þá var ekki aftur snúið. Ég efast um að margir hljómleikagestir komist út án þess að verða aðdáendur.

Villi Asgeirsson, 3.4.2008 kl. 09:07

9 Smámynd: Sigrún Friðriksdóttir

Mér finnst svo fyndið hvað heimurinn er oggulítill, þegar ég les blogg frá þér í Hollandi um tónleika og frétti svo að tengdarpaddi, mákona og mágur voru þarna líka og ég sit hér úti í Noregi og les þetta á Íslensku mogga bloggi :)

Klemm og knús :)

Sigrún Friðriksdóttir, 3.4.2008 kl. 16:58

10 Smámynd: Sigrún Friðriksdóttir

Tengdó var rosalega hrifin af þessu með gítarinn í loftinu með ljósunum

Sigrún Friðriksdóttir, 3.4.2008 kl. 16:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband