Berjumst fyrir friði

Berjumst fyrir friði. Er það besta leiðin? Ef einhver öskrar á þig útí búð, kallar þig homma, komma eða druslu, hvað gerirðu? Þú getur "varið" þig og öskrað á móti og þannig skapað rifrildi eða slagsmál. Þú getur líka látið eins og manneskjan sé ekki til og látið þetta fuðra upp. Það þarf tvo til að búa til rifrildi. Það er ekki hægt að berjast fyrir friði án þess að fara út í stríð og drepa þannig alla möguleika á friði.

En þetta stríð er öðruvísi. Það var ráðist á okkur. Eða hvað? Jú, það var ráðist á tvíburaturnana. Ég ætla ekkert að fara út í það hver gaf skipunina. Breytir engu. Hvað gerðum við? Réðumst á Afghanistan. Bjuggum til meira hatur og heift. CIA setti Bin Laden á sinn stað, gaf talibönum vopn til að klekkja á rússum. Bjuggu til vesenið sem þeir eru að berjast við núna. Svo var ráðist inn í Írak að ástæðulausu. Og ekki segja að það hafi verið erfitt að sjá það þá að þetta voru lygar. Ég sá í gegn um það. Flestir gerðu það, held ég.

En hvað hefðum við getað gert? Fyrir það fyrsta, ekki breiða út hatur. Ekki segja heiminum fyrir, ekki vera "bully". Ef þú sýnir réttlæti, mun heimurinn virða þig. Fari hlutirnir samt til fjandans eins og gerðist fyrir rétt rúmum átta árum, ekki fara í stríð. Snúðu fólkinu á þitt band. Hjálpaðu afgönum að losa sig við talíbanana á friðsamlegan hátt. Þú getur ekki slökkt eld með eldi. Gefðu fólkinu möguleika á að leysa sín mál sjálft. Ekki sprengja allt í loft upp og drepa heilu þorpin i nafni friðar.

En stríð eru ekki okkar áhugamál. Vopnaframleiðendur hafa forseta í vasanum. Verktakar sem fá það verk að endurbyggja heilu löndin sem hafa verið sprengd aftur í steinöld gera allt sem þau geta til að koma stríðinu á koppinn.

En það er líka stríð á vesturlöndum. Þar er ekki barist um lönd, heldur völd yfir þér. Ísland er sérdæmi, enda varð að koma því harkalega á hausinn til að koma því inn í ESB. Þessi alþjóðakreppa mun sennilega spilast svona.

1. Skrúfa fyrir fjármagn og koma bönkum í vandræði. (komið)

2. Fá ríki til að setja allt sem þau eiga, og meira, inn í bankana. Sjá til þess að ríki heimsins eigi enga varasjóði og að yfirdrátturinn sé í botni. (komið)

3. Hér kemur seinni aldan yfir. Þar sem rikin eiga enga peninga eftir, koma bankarnir til hjálpar. Bankarnir sem komu þessu af stað hjálpa ríkjunum að fjármagna kreppuna. Þetta mun gera það að verkum að bankarnir koma sem sigurvegarar út úr kreppunni. Stórfyrirtæki munu stjórna heiminum. Plutocracy, ekki democracy.

En jú, enginn verður drepinn nema kannski í sjálfsvörn á degi friðar, svo við getum sest fyrir framan sjónvarpið, horft á einhvern "skemmtiþátt" og sofið svefni hinna réttlátu því það var friður í heiminum í dag. 


mbl.is Enginn hernaður á Friðardaginn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framfarir

Það sér hver maður að þessar línur munu bæta líf suðurnesjamanna, auka hagvöxt landsins og svo eru þær eins og peningalyktin. Ekki kannski fallegar þannig séð, en maður veit að þær eru að vinna fyrir mann. Þarna streymir skínandi gull.

Verst að gullið endar oft í erlendum vösum. Það mun aukast.

Annars eru framfarir eins, skuggi annars.

Höfðatorg

 

Birt án leyfis en vona að höfundi sé sama. Sjá hér: http://www.skyscrapercity.com/showthread.php?t=554486 



mbl.is Verulega neikvæð áhrif vegna lagningar Suðvesturlína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sammála!

Eins og árferðið er, höfum við ekki efni á að borga undir langvarandi sjálfsmorðstilraunir hinna ýmsu þjóðfélagshópa. Hækkið naglana í raunverðið. Ef 3000 kall dekkar allan sjúkrakostnað reykingafólks, er um að gera að hækka pakkann í 3000 kall. Gleymið bara ekki að fella niður öll sjúkragjöld á móti, alla aðra skatta sem fara í heilbrigðiskerfið.


mbl.is Pakkinn þyrfti að fara í 3000 kr.
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þeir fylgjast með...

Kunningi kunningja míns spáir töluvert í samsæriskenningar, CFR, Bilderberg hópinn, Illuminati, Rockefeller, Rothschild og allt það. Hann var í búð um daginn, valdi sér bók um eitthvað af ofngreindum málefnum og fór að kassanum til að borga. Hann tók upp debet kortið, en var snarlega stoppaður af afgreiðslumanninum. "Ef þú kaupir þessa bók með korti, verða send skilaboð í einhvern gagnagrunn og það verður fylgst með þér." Hann var með seðla á sér og borgaði þannig.

Ekki veit ég hvort það sé satt að rauð pera fari að blikka við hliðina á nafninu hans, en tæknilega er ekkert sem kemur í veg fyrir svona persónunjósnir. Holland er líka fæðingastaður Bilderberg hópsins og mikið af elítunni kemur héðan. Það fær mann allavega til að hugsa, þegar félag stórmarkaða fer að tala um að hætta að taka við peningum árið 2013. Þeir vilja bara kort. Af hverju? Af því að þannig er ekki hægt að ræna þá, er sagt. Hin hliðin er að þá er hægt að fylgjast með hvað þú étur, drekkur og reykir. Tryggingarfélagið gæti hugsanlega neitað að bæta þér vinnutap því þú kaupir kassa af bjór og reykir átta pakka í viku og étur þrjú Snickers á dag. Þar að auki borðar þú afskaplega lítið af grænmeti.

Allavega, nú er ég sennilega kominn á einhvern lista einhversstaðar eftir fyrstu setningu færslunnar.


mbl.is Forsetinn geti lokað Netinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýr Bíll?

Við erum að spá og spekulera. Sunnyinn er fínn og honum höldum við um sinn, en Roverinn sem við keuptum fyrir þremur árum og ég bloggaði um á að fara. Fallegur bíll og virkar fínt, en... veit ekki. Dellan að koma aftan að manni?

Erum sem sagt að spá í tveggja dyra Benz. Ég vildi helst 500SEC eða 280CE frá því fyrir 1985 til að sleppa við skattinn, en þeir eru dýrir. Kannski maður láti sig hafa þennan 300CE frá 1988 í staðinn...

Mercedes-Benz 300CE Fallegur að innan...

 

Heyri nú að bíllinn sé skemmdur eftir umferðaróhapp, en að hann verði kominn í lag á miðvikudag. Ef viðgerðin gengur svona fjljótt fyrir sig, geri ég ráð fyrir að skaðinn sé lítill, en bað þó um mynd svo ég gæti ákveðið það sjálfur hvort ég fari í bíltúr að skoða. Það má láta sig hafa ýmislegt fyrir 1950 evrur.


Okrarar

Við ætluðum að heimsækja fjölskylduna á Íslandi en það verður að bíða betri tíma. Miðaverðið hefur rokið upp og við höfum ekki efni á að borga fyrir þriggja tíma flug. Það kostar okkur þrjú hátt í 1200 evrur að fljúga heim. Það kostar um 1500 á business class til New York. Svipað á túristaklassa til Taiwan. 300 evrur til Oslo.

Er ekki kominn tími á að FI fari á hausinn svo að við getum fengið alvöru samkeppni?


mbl.is Heimild til að auka hlutafé Icelandair
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bluetooth?

Hvernig laðar maður konur að sér með Bluetooth tækni? Ég veit að einhverjar eru veikar fyrir gulli, en er ekki viss um að gulltennur virki vel. En Bluetooth?

Það vill svo til að það er Bluetooth á símanum mínum, svo ábendingar eru velkomnar. 


mbl.is Arabískur montrass í vanda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hverjum er ekki sama?

Það er næstum sama hvar í heimi er, stjórnvöld eru spillt og bera enga virðingu fyrir plebbunum. Sagan af fréttamönnunum er ekkert leyndarmál. Ef dauði þeirra var slys, er Hallgrímskirkjan súkkulaðibúðingur með piparsósu.

Stuttu fyrir innrás Indónesíu var bandaríkjaforseti í heimsókn. Áður en hann kom í heimsókn, voru indónesísk yfirvöld beðin um að bíða með innrásina þangað til forsetinn væri farinn. Annars liti þetta svo illa út fyrir Bandaríkin. Góða Heimsveldinu var skítsama um íbúa Austur-Tímor. Þau vildu bara koma í veg fyrir "bad PR".

Fréttamennirnir sem fréttin fjallar um voru teknir höndum af indónesum. Þeir voru stimplaðir njósnarar og pyntaðir til dauða. (viðkvæmir geta hætt að lesa hér) Þeir voru hengdir upp á fótunum. Limirnir voru skornir af þeim og troðið upp í kok svo að þeir köfnuðu. Síðan voru líkin brennd.

Þetta heyrði ég fyrir 15 árum. Þetta er enginn nýr sannleikur. Þetta er saga sem hefur verið þekkt í tæp 35 ár. En pólitíkin er þannig að sumt er ekki nógu spennandi. Sumt tölum við ekki um. Sigurvegarinn skrifar söguna og við trúum því sem okkur er sagt.

Þetta er spilltur heimur og yfirleitt er okkur skítsama um það. Þetta er óréttlátur heimur, en við höfum ekki tíma til að láta það koma okkur við nema óréttlætið beinist að okkur sjálfum.


mbl.is Blaðamenn voru pyntaðir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki skjóta fótinn

Það var fyrirsjáanlegt að Þráinn myndi kjósa með ESB aðild. Ég kalla þetta aðild því við erum að hefja inngönguferli. Maður fer ekki í svona viðræður nema vera alvara.

Það sem var minna fyrirsjáanlegt var að hann skyldi fara í fýlu yfir því að hinir þrír þingmennirnir kysu eftir eigin sannfæringu, en ekki hans. Það er misskilningur eða útúrsnúningur að segja að Borgarahreyfingin hafi haft ESB aðild í stefnuskránni. Sannleikurinn er að flokkurinn hefur enga opinbera stefnu í ESB málum.

Allir þingmenn Borgarahreyfingarinnar kusu eftir eigin samvisku. Í mínum augum er þetta sterkur flokkur. Ég vona að Þráinn fari ekki að skemma fyrir.


mbl.is Fréttaskýring: Jaðrar við klofning í þinghópi borgaranna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vegna umsóknar um pláss...

Velkomin inn í hinn staðlaða heim ESB þar sem allir sitja prúðir í sínum staðlaða kassa, kaupa staðlað grænmeti*, lesa staðlaðar leiðbeiningar og keyra á stöðluðum hámarkshraða. Inngönguferlið er líka staðlað. Ekki útgönguferlið þó. Okkur hefur ekki komið saman um hvernig best er að segja sig úr ESB og höfum því enga staðla þar að lútandi. Þar til svo verður, er ekki hægt að segja sig úr sambandinu. Við biðjumst afsökunar á öllu ónæði sem kann að verða að þessu, en erum viss um að fulllur skilningur ríki meðal þegna vors.

Við í ESB skiljum að þið séuð öðruvísi en aðrar þjóðir, en allar þjóðir eru örlítið öðruvísi en aðrar. Þar af leiðandi höfum við þurft að staðla háttarlag, umbúðir og allt sem fólk gerir, kaupir og segir svo að okkur komi saman. Það er ekki einfalt mál að láta 27 þjóðir með mismunandi menningu og sögu syngja sama sönginn, en það hefur þó tekist með því að staðla allt. Enginn er fyllilega ánægður með lífið í ESB, en enginn er neitt sérstaklega óánægður heldur. Lífið er bara eins og það er og ef þú ert ósammála, getur þú fyllt út eyðublað og málið verður tekið fyrir við fyrsta tækifæri.

Ég veit að þið viljið sér meðferð, þið viljið halda fiskinum og orkunni og öllu því. Við skiljum þetta allt saman og munum reyna allt sem við getum til að hjálpa ykkur, svo framarlega sem það snertir ekki við stöðlunum okkar.

Það hjálpar ykkur auðvitað ekki að koma svona skríðandi á hnjánum. Þið hefðuð átta að koma þegar allt var í gúddí (orði eytt, stenst ekki staðlaða málfræði, vinsamlega breyta). Þið hefðuð ekki átt að setja ykkur svona upp á móti okkur. Og regla númer 1 2 og 3, ekki pirra Þýskaland, Bretland eða Frakkland. Í þessari röð.

Annars óskum við ykkur til hamingju og hlökkum til að ræða málin á þar til gerðum eyðublöðum sem fást á skrifstofum Alsherjarnefndar ESB í Brussel. Þau kosta 20.000 evrur og óskast fyllt inn í þríriti. Tekið er fram að fylla þarf inn eitt eyðublað fyrir hvern íbúa Íslands, tvö ef um börn innan 12 ára aldurs er að ræða, eða fólk komið á eftirlaun. Ekki er nauðsynlegt að fylla inn eyðublöð fyrir fólk á aldrinum 25-35 ára með lán sem nema 2.5 sinnum árstekjum, því það mun flytja frá Íslandi innan fimm ára.

Bestu kveðjur frá ESB 

*Athugið að nýlega var ESB reglum um grænmeti breytt. Agúrkur þurfa ekki lengur að vera teinréttar. Æskilegt er þó að þær séu ekki bognari en sem svarar 27° og séu jafn sverar frá einum enda til annars, nema endarnir sjálfir, sem teljast vera 7.5% heildarlengdar gúrkunnar. Tómatar í einni pakkningu mega nú vera misstórir, þó má ekki muna meira en 12% í þyngd á léttasta og þyngsta. Þeir skulu allir hafa sama pantone gildi (lit).


mbl.is Umsókn metin á staðlaðan hátt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband