Stýrivextir lækkaðir í 1%

Mér skilst að IMF hafi farið fram á 18% stýrivexti til að verja krónuna og landið fyrir meiriháttar fjármagnsflótta. Nú virðast snillingarnir hafa komist að sömu niðurstöðu og sauðirnir sem vissu alltaf að erlendir fjárfestar myndu panikka og stóru lánin okkar hverfa úr landi. Þá er bara að setja ný neyðarlög sem setja upp Berlínarmúr fyrir peninga.

En ef peningarnir eru fastir á Íslandi og engin hætta á flótta, þarf ekki svona stýrivexti. Þá má lækka stýrivexti niður í 1% eins og IMF vill að öll hin löndin geri.

Af hverju fæ ég á tilfinninguna að ráðafólk sé að impróvísera og hafi ekki hugmynd um hvað skal gera? 


mbl.is Geta stöðvað gjaldeyrisflutninga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

úff, þetta er rosalegt, manni líður eins og í styrjöld hérna, peningar frystir heima og s.vextir mjög háir.  Þessir menn vita nákvæmlega ekkert hvað þeir eru að gera eða hvað skal gera næst. 

alva (IP-tala skráð) 28.11.2008 kl. 08:20

2 Smámynd: Magnús Sigurðsson

Þessir ráðamenn vita ekkert hvað þeir eru að gera því þeir kunna bara að búa til gengishrun, óðaverðbólgu og eignaupptöku.  Við verðum að losna við þá.

Magnús Sigurðsson, 28.11.2008 kl. 17:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband