Það sem ég ekki skil

Kannski ætti ég að lesa mér til um þennan pakka frekar en að blogga, en vonandi getur glöggur lesandi útskýrt málið fyrir mér.

Hugmyndin er að spýta 700 milljörðum dollara inn í hagkerfið. Þetta eru um 70.000 milljarðar króna. 70.000.000.000.000,- Það er hægt að kaupa 3-4 milljónir heimila fyrir þessa upphæð. Hvaðan koma þessir peningar og hvaða áhrif munu þeir hafa?

Bandaríski seðlabankinn, Federal Reserve er einkabanki. Margir halda að hann hafi eitthvað með bandaríska ríkið að gera, en svo er ekki. Hann er í eigu tiltölulega lítils hóps forríks fólks. Á hann þennan pening inni á bók, eða verður þessi peningur til úr engu? Munu eigendur bankans fá eðlilega vexti eða er tekið fyrir það í þessari tillögu? Miðað við fimm prósent vexti eru vaxtagreiðslur 35 milljarðar dollara á ári. 

Mun þessi innspýting ekki rýra gildi dollarans? Þetta eru gífurlegar upphæðir, meira að segja í Ameríku. Ég veir ekki hvað fjárlögin eru stór og hvað margir dollarar eru í umferð, en þetta hlýtur að þýða töluverða gengisfellingu.

Spurningin er því, hvað er bandaríkjastjórn að reyna að áorka með þessu? Mun þetta bjarga efnahagnum eða leggja hann endanleg í rúst? Eða einhversstaðar mitt á milli, og þannig ekki skipta máli og þá væri alveg eins gott að sleppa þessu? Spyr sá sem ekki veit. 


mbl.is Fréttaskýring: Björgunarpakkinn blandast inn í kosningabaráttuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Steinar Ragnarsson

Þetta er samsvarandi upphæð og seðlabankinn lokkaði inn í landið með hávaxtastefnunni. Spekúlantar, sem stóðu á götuhornum og buðu lán til að ávaxta pundið sitt til skammst tíma. Skammtímaskuldbindingar sem voru háðar styrk krónunnar og háum vöxtum. Þegar svo hefur hallað undan fæti, hafa þessir spekúlanar verið að draga þessa peninga út og innheimta veðin. Ekki bara vegna ástands hér, það hefð varla þurft hér. Hnignadi lausafjárstaða þessara manna kallaði á það líka. 

Nú ætlar ríkið að skuldbinda fólkið fyrir klúðrinu sínu. Slysi sem var óumflýjanlegt og varað var við í 3 ár.  Þessir spekúlantar og bankarnir tóku seðlabankann í gíslingu og hefur hann ekki haft neitt sjálfvald s.l. 2 ár. Fjöregg okkar hefur verið alfarið í höndum glæpamanna í líkingu við Hannes Smárason og co.

Jón Steinar Ragnarsson, 27.9.2008 kl. 02:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband