Misskildi þetta

Það fyrsta sem mér datt í hug var að einhver hefði strokið úr fangelsi og hans væri nú leitað erlendis eftir að hafa sloppið úr landi. Þetta er ekki ádeila á moggamenn, íslenskan bauð bara upp á þetta.

Annars er ég að leita fanga erlendis. Fór meira að segja úr landi til að finna hamingju og ríkidæmi. Það eina sem ég fann voru grá hús og feitar franskar með majonesi. Jú, og túlipana á vorin.

Best að slútta þessari færslu áður en einhver potar í óviðeigandi hnappinn að neðan.

---

PS. Það fæddist lítill drengur við hliðina um 5:30 í morgun. Ég varð ekki var við neitt, þótt ég hefði vaknað klukkan fimm og farið í vinnuna um sex. Hvað um það, var að kíkja á hann og hann er bara ansi snotur, og segi ég það ekki oft um nokkurra klukkutíma gömul börn.


mbl.is Auðurinn kemur að utan
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Nýfædd líf eru oftast snotur.. 

Gunnar Helgi Eysteinsson, 13.4.2008 kl. 20:12

2 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Svo það var heimafæðing við hliðina á þér. Þú sagðir að þú hefðir bara fundið grá hús en þú fannst Miriam og þig eigið dreng. Þú átt vini og kunningja. Þú hefur fundið ýmislegt í Hollandi. Kannski voru þetta örlög þín. Bestu kveðjur.

Jórunn Sigurbergsdóttir , 13.4.2008 kl. 23:52

3 Smámynd: Óskar Arnórsson

Til hamingju! Ég hef verið svo heppin að vera viðstaddur fæðingu allra minna barna, nema fyrsta skiptið..það leið yfir mig og þurfti ég á meiri aðstoð að halda en konan mín..

Óskar Arnórsson, 14.4.2008 kl. 00:02

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband