Ríkisstjórnin grátbiður, kjósið VG.

Það er furðuleg ríkisstjórnin sem grátbiður um að vera ekki endurkjörin. Það er bara vonandi að kjósendur heyri ekkann.

Alcoa aftur. Þeir vilja byggja annað álver, og svo annað og svo annað. Umhverfismál eru okkur mikilvæg eins og Kárahnjúkar, Trinidad og Rockdale sanna. Málið er að Alcoa er skítsama um umhverfið. Það eina sem Alcoa vill er rafmagn svo hægt sé að bræða ál. Það vill svo til að íslendingar eru meira en til í að eyðileggja landið fyrir Alcoa. Það er líka eins gott því heimskingjarnir í Trinidad og Tobago virðast ekki vera sama um sitt land (www.NoSmelterTNT.com) og fíflin í San Antonio, Texas eru svo frek að þau krefjast hreins drykkjarvatns (http://texas.sierraclub.org/newsletters/lss/Fall-99/alcoa.html).

Sem betur fer er Kathryn S. Fuller bæði í stjórn Alcoa og WWF og getur því komið í veg fyrir að þær grænmetisætur séu að skipta sér af hlutunum (http://en.wikipedia.org/wiki/Kathryn_S._Fuller). Fyrir utan það að hún og fleira Alcoa fólk er með puttana í Washington og hafa áhrif á bandarísk stjórnmál.

Hvenær ætla íslensk yfirvöld að skilja að þau eru að leika sér með eld? Þetta er fólk sem notfærir sér sakleysi (ignorance, ekki innocence) leiðtoga. Allavega vona ég frekar að íslensk stjórnvöld séu bara svona saklaus eða vitlaus en að þau séu að selja landið fyrir eigin gróða.

Mér sýnist vera ein staða í málinu og það er að kjósa ríkisstjórnarflokkana út, ekki bara á næsta ári heldur strax í næstu viku.


mbl.is Viljayfirlýsing um álver á Húsavík undirrituð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Villi Asgeirsson

Einhversstaðar las ég að ef Ísland yrði fullvirkjað, hver spræna og skolprör sem sagt, myndum við framleiða næga orku fyrir helming sjónvarpa í Bandaríkjunum sem eru á Stand-By. Ef allir Bandaríkjamenn myndu slökkva á sjónvarpinu með takkanum, ekki fjarstýringunni, sparaðist tvöföld sú orka sem Ísland getur framleitt fullvirkjað.

Fyrir utan það að megnið af því áli sem framleitt er fer í gosdósir og er hent frekar en að endurvinna. Nýtt ál er svo ódýrt hvort eð er. Skítt með íslenskt hálendi og frumskóga á Jamaika og T+T, nýtt ál er hræódýrt.

Ef hrein orka væri málið værum við ekki að selja raforku á útsöluverði. Það að geta framleitt hreina orku hlýtur að vera einhvers virði, en íslensk stjórnvöld virðast trúa eigin æaróðri of auðveldlega.

Hvað VG varðar, ég myndi kjósa þau einfaldlega vegna þess að þau virðast vera eini flokkurinn sem ber einhverja virðingu fyrir landinu. Eins og er er allt annað minna áríðandi. Ef þau klúðra efnahagnum er hægt að laga það en ef landinu er sökkt er ekki aftur snúið. Leyfum græningjunum að vera í stjórn þar til græðgin hefur sjatnað eitthvað. Flestum virðist ekki vera treystandi fyrir stjórnunarstöðum eins og er.

Villi Asgeirsson, 18.5.2006 kl. 06:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband