19.1.2010 | 21:07
Guðfaðir Búsáldabyltingarinnar kveður (konuna)
Dennis Hopper er einn af uppáhaldsleikurum mínum. Hann er kúl og fyndinn. Hann fann líka eiginlega upp slagorð búsáhaldabyltingarinnar, helvítis fokking fokk. Man eftir því þegar hann lét ein flottustu orð kvikmyndasögunnar út úr sér í myndinni Blue Velvet eftir David Lynch. Hann var eitthvað að pirrast og öskraði "fuck that fucking fuck!" Við sem horfðum sprungum auðvitað á staðnum. Ég gat því ekki annað en hugsað um hann meðan fólk var að æpa niðrí bæ í von um að eitthvað myndi breytast á Íslandi.
En af hverju að skilja eftir 14 ár, á dánarbeðinu? Hvað hefur kélla verið að gera sem fer svona illa í deyjandi manninn? Maður veit það svo sem ekki. Utanaðkomandi vita svo sem aldrei hvað er að gerast innan veggja heimilisins. Hjónabönd fara í hundana, jafnvel eftir 14 ár. Ojá, þau gera það.
En það sem gerir alveg út af við mig er að hann vill sameiginlegt forræði. Húmorinn í lagi þrátt fyrir að maðurinn með ljáinn sé farinn að breima í garðinum.
Það er því ekki hægt að segja neitt annað en helvítis fokking fokk um ástand hans núna. Respect, man!
Óskaði eftir skilnaði á dánarbeðnum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Meginflokkur: Kvikmyndir | Aukaflokkar: Bloggar, Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Má ekki segja að hann sé á síðasta séns þessi maður :)
Kolbrún Stefánsdóttir, 20.1.2010 kl. 20:58
hannhefur gert sér grein fyrir að það eru fl víddir og þegar hann kæmi yfir á hina, vildi hann ekki hafa nein bönd til kéllu :o)
kær kveðja
Steinunn Helga Sigurðardóttir, 18.2.2010 kl. 07:16
Já það gæti verið rétt samanber þessa umfjöllun mína um leiksýningu. Þar var framhaldslífið aðaláhyggjuefnið :) kveðja Kolla.
Kolbrún Stefánsdóttir, 18.2.2010 kl. 18:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.