23.12.2006 | 08:05
Gleðileg Jól
Jólin voru einn af þessum föstu hlutum í lífinu. Þau voru alltaf á sama tíma og þau voru alltaf eins. Við fórum í kirkjugarðinn til að heilsa upp á liðna ættingja og fórum svo í bíltúr að smala pökkum. Stundum kom fólk með pakkana sjálft. Það var horft á teiknimyndir, því það virðist sem tíminn hafi liðið hægar í þá daga. Aðfangadagur var auðvitað sá dagur sem lengst var að líða. Klukkan sló svo sex og allir settust við borðið og átu lambahrygg. Svo voru það pakkarnir, konfekt, smákökur. Á jóladagsmorgun var svo fengið sér heitt súkkulaði með smákökum í morgunverð.
Jólin voru alltaf eins. Einu sinni borðuðum við svín og það komu engin jól. Ekki af því að svínið hafi verið slæmt, það var bara ekki jólamaturinn.
Ég flutti erlendis 1993 en ég sá til þess að ég kæmist heim um jólin. Það breyttist þegar ég flutti til Hollands. Nú var maður farinn að búa og þurfti að útskýra, rökræða og hliðra til. Jólin komu ekki lengur á aðfangadag, heldur á jóladag. Pakkarnir voru opnaðir þegar allir sáu sér fært að vera á einum stað í einu, stundum þremur dögum eftir jól. Það var erfitt að útskýra fyrir íslendingunum heima hvers vegna maður væri ekki búinn að opna gjafirnar sem þau höfðu sent.
Nú er komin einhver regla á þetta. Jólin koma ennþá á jóladag. Þau fatta aðfangadag ekki. Þau fara alltaf í kirkju á aðfangadagskvöld, svo að þau eru í allt annari pælingu. Á jóladag hittumst við svo, étum og opnum pakka. Ég verð að gefa konunni það að hún gerir sitt besta á hverju ári til að koma einhverjum hátíðarbrag á jólin, en það vantar bara eitthvað hér í Hollandi. Kannski er það af því að fólk skreytir voða lítið. Kannski þriðja hvert hús hér í götunni er skreytt ljósum, þau eru öll hvít og slökkt á þeim á daginn. Sum blikka. Kannski er þetta ekki þeim að kenna. Það er lítil hefð fyrir jólum í Hollandi. Er þetta kannki einhver fortíðarþrá í mér. Kannski eru það ekki ljósin og lambið sem maður saknar á jólum.
Jólin eru eins falleg eða eins óspennandi og við gerum þau. Jólin eru ekki hátíðleg að sjálfu sér. Jólin, eins og lífið, eru það sem við gerum úr þeim. Verum góð við hvort annað um jólin og á nýju ári.
Gleðileg Jól!
Meginflokkur: Bloggar | Aukaflokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Ég hef ekkert að segja... þið eruð búin að segja það sem ég vildi segja... Gleðileg Jól
Gunnar Helgi Eysteinsson, 23.12.2006 kl. 11:11
Var einmitt svo glöð yfir því að dvelja hjá danskri konu í Edinborg á jólunum þegar ég var 19 ára því að aðfangadagskvöld var haldið hátíðlegt hjá hennieins og hér .Vinur minn vildi ekki skilja mitt sjónarmið um að aðfnagadagskvöld hefi þýðingu fyrir mig. Þetta eru einu jólin sem ég hef verið erlendis og ég var talsvert barnaleg þá. Skil havð þú ert að segja um jólin áður fyrr. Ég óska þér og þínum gleðilegra jóla.
Jórunn Sigurbergsdóttir , 23.12.2006 kl. 11:51
Gleðileg jól !!!
Sigrún Friðriksdóttir, 23.12.2006 kl. 18:34
gleðileg jól
Ólafur fannberg, 23.12.2006 kl. 20:53
Ég verð að játa að mér finnst aljólalegast þegar ég er ein einhversstaðar með sjálfri mér ... Friður og ró og fullt af stjörnum á himninum ... Það finnst mér vera hin fullkomnu jól :)
gerður rósa gunnarsdóttir, 23.12.2006 kl. 22:13
... hafðu gleðileg jól kæri Villi :) Gerður og dýrin
gerður rósa gunnarsdóttir, 23.12.2006 kl. 22:17
Já veistu Villi minn - jólin eru ennþá alveg eins og þú lýstir þeim og það hlýtur að vera erfitt að breyta útaf svona hátíðlegum vana eins og við Íslendingar ríghöldum í. En það er þá ágætt að vita af því að það er alltaf hægt að koma heim ein og ein jól og rifja upp alvöru íslensku jólin - þau hverfa aldrei!
Gleðileg jól og heillaríkt komandi ár.
Hlakka til að sjá þig á nýju ári!
Kær jólakveðja, Anna Brynja
Anna Brynja (IP-tala skráð) 23.12.2006 kl. 22:37
gleðileg jól og sorry að ég gleymdi að segja þér frá nýja emailinu,en það er joelsaem@gmail.com
hafðu það gott um hátíðrinar bið að heilsa öllum sem ég þekki
joel (IP-tala skráð) 24.12.2006 kl. 17:55
Athugasemdir frá báðum aðalleikurunum! :)
Ég vona að það segi ekkert um mig og hversu eftirminnilegur ég er ef annar aðalleikarinn í mynd sem var tekin upp fyrir stuttu síðan er búinn að gleyma manni.
Villi Asgeirsson, 24.12.2006 kl. 21:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.