Grotn

Í vetur var ég á því að þetta ætti að klára. Nú er óöldin önnur. Þetta hús er tákn bruðls og geðveikislegrar veraldarhyggju og hefur ekkert með list að gera. Alvöru listamenn þurfa ekki milljarðabyggingu, þeim líður ekki vel í 100.000 króna hótelherbergjum. Þetta hús var ekki byggt fyrir listamenn. Það var byggt fyrir ráðstefnugesti með silkibindi sem kosta álíka mikið og bíllinn minn.

Þetta hús er tákn hugsunarháttar sem kemur vonandi ekki aftur, þar sem jeppinn skipti meira máli en amma, þar sem krakkinn flæktist fyrir og var látinn halda kjafti með nýjum iPod, PSP eða einhverju öðru sem var orðið úrelt eftir viku. Þetta hús á að fá að standa í núverandi mynd og grotna rólega niður. Leyfum hafinu að éta það. Þangað til mun það minna okkur á hvað það er sem virkilega skiptir máli. 


mbl.is Deilt um tónlistarhús á þingi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mæltu manna heilastur.

kveðja Rafn.

Rafn Haraldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 20.5.2009 kl. 19:35

2 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Móttekið. Oft var ég á móti og svo hélt ég í baranskap mínum að þetta tónlistarhús yrði eitthvað fyrir alla, en núna, ég veit ekki, Takk Villi minn fyrir þetta blogg.

Jórunn Sigurbergsdóttir , 24.5.2009 kl. 23:41

3 Smámynd: Gísli Foster Hjartarson

Þetta líst mér vel á látum þetta grotna

Gísli Foster Hjartarson, 25.5.2009 kl. 20:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband