Þökk sé Bob og Bono? - Nýlendustefna okkar tíma.

Í Afríku er nóg af gulli og demöntum, olíu og ræktarlandi. Þetta ætti því að vera ein ríkasta heimsálfa á jörðinni. Þó er hún sú fátækasta. Fáir búa við verri kjör en þeir sem vinna við það sem best gefur af sér, demantagröft og olíuvinnslu. Vesturlönd sjá til þess að Afríka haldist fátæk. Við viljum auðlindirnar á okkar kjörum og okkar skilmálum.

Fallegt

Þegar hinn almenni vesturlandabúi fær nóg og fer að rífa kjaft, er farið af stað með söfnun svo byggja megi trúboð sem útbýta hrísgrjónum og fiskimjöli svo fólkið þurfi ekki að drepast alveg. Í staðinn er því kennt hvernig Guð skapaði heiminn á viku og hvernig sonur hasn kom til að bjarga oss frá illu. Þeim líka.

Þetta virkar ekki. Afríka er jafn fátæk og hún var fyrir LiveAid hljómleikana í júlí 1985. Það er sama hversu mikið við gefum, það dugar ekki til. Ég get gefið fátækum manni að borða daglega, en ef ég gef honum ekki tækifæri til að bjarga sér sjálfum, mun hann koma á hverjum degi og biðja um meira.

Drop the Debt virtist vera falleg hugmynd. Loksins átti að fella niður skuldir svo afríkuríkin gætu byrjað upp á nýtt og komið sér upp úr skuldafeninu. Live8 var sett upp 2005, Bob Geldof barðist af krafti og Bono lét auðvitað sjá sig, enda sér hann sig sem einhvern mannúðarmessías (í boði BlackBerry). Pólitíkusar töluðu um bjartari framtíð og jafnrétti ríkjanna. En hvað gerist? Pólitíkusar og stjórnendur stórfyrirtækja geta ekki verið góðir, þeir geta ekki fellt niður skuldir og látið það duga. Nei, hugsunarhátturinn "what's in it for me" verður seindrepinn.

Til að skuldir verði felldar niður, verður viðkomandi land að taka upp vestræna viðskiptahætti. Fella niður innflutningstolla, því það er svo gott fyrir frjáls viðskipti. Eftir áratuga fátækt er kannski um 70% landsmanna kotbændur. Þeir framleiða korn og hrísgrjón og selja á mörkuðum nálægt heimilinu. Þegar öll innflutningshöft eru fjarlægð, fyllist markaðurinn af niðurgreiddum landbúnaðarvörum frá Evrópu og Bandaríkjunum. Okkar vörur eru ódýrari því ríkið er þegar búið að greiða hluta framleiðsluverðsins. Kotbændurnir geta ekki keppt, bregða búi og flytjast í fátækrahverfi í útjaðri stórborganna. Hefur líf þeirra batnað við að ríkið losnaði við skuldirnar? Nei, þvert á móti.

Þegar megnið af fátækum kotbændunum eru farnir á hausinn og fluttir burt, er það einfalt og ódýrt fyrir stórfyrirtæki á vesturlöndum og í Kína að kaupa upp heilu löndin í Afríku. Það kemur sér vel eftir 10-20 ár að eiga mikið ræktarland, því við horfum fram á gríðarlega fjölgun mannkyns, fólks sem þarf að éta. Ofan á það bætist græna hreyfingin sem heimtar græna orku. Biofuel verður að framleiða og þá þarf mikið flæmi lands.

Það er því engin tilviljun að stórfyrirtæki, og jafnvel erlend ríki, séu að kaupa upp land í Afríku akkúrat núna. Þetta er fjárfesting til framtíðar.


mbl.is Kínverjar kaupa upp Afríku í kreppunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: halkatla

Þetta er mjög góð grein.

halkatla, 17.3.2009 kl. 11:26

2 Smámynd: Rakel Sigurgeirsdóttir

Ýmsir hagfræðingar hafa spáð því að Asíulöndin, Kína og/eða Indland, taki við af vesturveldunum sem markaðsráðandi lönd í nánustu framtíð. Það er ömurlegt að það byggist m.a. af því að ráða þessari hrjáðu en fallegu heimsálfu

Mikið vildi ég að mannfólkið breyttist þannig að mannúðin væri sett í fyrsta sæti og eftirsóknin eftir gróða hvað sem hann kostar í allra síðasta sætið...

Rakel Sigurgeirsdóttir, 17.3.2009 kl. 12:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband