Good day for bad news

Oft eru dagar eins og í dag notaðir til að leka slæmum fréttum sem stjórnmálamenn eða fyrirtæki vilja ekki hafa hátt um. Allt annað drukknar í umræðunni. Skandallinn, eða hvað það er sem þarf að leka, fær enga umfjöllum. Ef einhver minnist á málið seinna er hægt að segja, með góðri samvisku, að engu hafi verið haldið frá þjóðinni.

Spurning með að fylgjast með litlu fréttunum í dag. 


mbl.is Frestað vegna stórtíðinda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Viðar Björgvinsson

Spurningin er bara.. getur eitthvað komið á óvart þessa dagana? Hvaða fréttum væri hægt að lauma inn sem fólk vissi svosem ekki um hvorteðer.

Hvernig er annars að vera á móðurlandinu og upplifa þetta svona 'first hand' í stað þess að hanga undir sjávarmáli og lesa fréttirnar á MBL ? :)

Árni Viðar Björgvinsson, 29.9.2008 kl. 12:36

2 Smámynd: Villi Asgeirsson

Kem með fyrstu vél í fyrramálið.

Villi Asgeirsson, 29.9.2008 kl. 12:39

3 Smámynd: Árni Viðar Björgvinsson

Ah! Komdu fagnandi. Ég myndi glaður koma á semínarinn hjá þér en gat ekki fundið aurinn í veskinu hjá mér til að leyfa mér að skrá mig komplett á hátíðina og semínarana alla bara fyrir til að hlusta á þig :)

Árni Viðar Björgvinsson, 29.9.2008 kl. 21:33

4 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Ekki hissa þó þeir fresti.

Já, ertu að koma núna. 

Jórunn Sigurbergsdóttir , 29.9.2008 kl. 22:27

5 Smámynd: Villi Asgeirsson

Er að koma heim í dag.

Árni, ég ætla að tala sem minnst, enda hef ég ekki unnið neitt til afreka sem er þess virði að blaðra um. Nei, ég kem heim til að hlusta á fólk sem komið er lengra, hefur komin hlutum í verk og er ekki eins andskoti blankt og ég. Það er vonandi að ég geti lært eitthvað af þessu fólki.

Eins og ég minntist á í færslu um daginn var ég að klára að byrja á handriti fyrir kvikmynd í fullri lengd. Það væri óskandi ef einhver nennti að tala við mig um það.

Villi Asgeirsson, 30.9.2008 kl. 03:08

6 identicon

Ég hlakka mikið til að sjá þessa myndi í fullri lengd, þetta er vel skrifað og mjög spennandi handrit.

Sigrún (IP-tala skráð) 30.9.2008 kl. 12:19

7 Smámynd: Villi Asgeirsson

Jórunn, þarf að vinna þau fyrst. Sjáum til. Krossum fingur og önnur tré.

Sigrún, takk fyrir það. Maður rembist við næsta skref. Gott ef það er stökk. Hænufetin eru svo stutt. En allavega, gaman að heyra að þau sem hafa lesið þessa fystu og hráu útgáfu af handritinu eru mjög hrifin. Erum við að tala um íslenska stórmynd? Er ég að taka of stórt upp í mig? Best að fara að kæla sig við Tjörnina.

Villi Asgeirsson, 1.10.2008 kl. 10:05

8 Smámynd: Árni Viðar Björgvinsson

Jah, ég hef náttúrulega ekki séð handritið en Stuttmyndin var mjög góð og ég hef grun um að myndin í fullri lengd verð alls ekki síðri :)

Vonandi réðust mávarnir ekki á þig :)

Árni Viðar Björgvinsson, 1.10.2008 kl. 23:11

9 Smámynd: Villi Asgeirsson

Ertu búinn að sjá stuttmyndina?

Villi Asgeirsson, 2.10.2008 kl. 09:39

10 Smámynd: Árni Viðar Björgvinsson

Vissulega. Keypti hana af þér frá útlandinu. :)

Árni Viðar Björgvinsson, 2.10.2008 kl. 22:42

11 Smámynd: Villi Asgeirsson

Ah! Það er góðs viti þegar maður hefur náð að selja nóg til að muna ekki nöfnin á öllum kaupendunum. Afsakið minnisleysið og bestu þakkir.

Villi Asgeirsson, 3.10.2008 kl. 00:19

12 Smámynd: Árni Viðar Björgvinsson

Hahaha... já, það er heldur betur jákvætt!

Alls ekkert að afsaka, og ekkert að þakka heldur. Það var mín ánægja að fá að taka þátt í tilrauninni, og græða þar að auki á því hinn frábærasta DVD disk í safnið :)

Árni Viðar Björgvinsson, 3.10.2008 kl. 00:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband