Færsluflokkur: Bloggar

Búningar og skotlistar

Það var mikið að gera um helgina. Mér líður eins og ég sé að gera stórmynd. Ég hef verið að búa til shotlist undanfarið, þá er hvert einasta atriði skorið niður í smá búta. Hver klipping er plönuð áður en nokkuð er tekið upp. Það heftir klipparann kannski en ég veit af fyrri reynslu að maður verður að vita hvað á að gera þegar komið er á vettvang. Það þýðir ekki að mæta á staðinn, skoða sig um og segja "ókei, hvernig gerum við þetta?". Ég hef verið viðriðinn svoleiðis framleiðslu og veit að það gengur ekki nema maður hafi yfirdrifið mikinn tíma. Ég man eftir rökræðum, hálftímar og klukkutímar liðu án þess að nokkuð væri tekið upp. Ég er sem sagt að plana hvert einasta myndskeið (hvað heiti shot á íslensku?).

Svo eru það búningarnir. Myndin flakkar um aldirnar og það þarf búning fyrir hvert tímabil. Þar efr smá vandamál í gangi. Á Íslandi er ég ekki í neinum samböndum og þekki engan sem eitthvað hefur með búning að gera. Í Hollandi get ég reddað ýmsu, en eru þetta þá réttu búningarnir? Hollensk hönnun og tíska var alltaf öðruvísi en íslensk. Mér finnst að fyrst maður er að gera íslenska mynd úr þessu er eins gott að fara alla leið og nota íslenskan klæðnað. Ef einhver veit hvert ég get snúið mér, vinsamlegast skiljið eftir athugasemd.

Íslensk mynd, það er ekkert nýtt? Átti þetta ekki alltaf að vera íslenskt? Nei, ég ætlaði alltaf að taka hana upp á Íslandi vegna þess að landslagið passar við söguna. Svo er hún lauslega byggð á atburðum sem gerðust á Íslandi. Restin hafði ekkert með Ísland að gera. Hún yrði á ensku og gerð fyrir erlendan markað. Nú lítur út fyrir að hún verði á íslensku, svo til allir sem koma að henni eru íslendingar. Ég mun samt sem áður reyna við erlendan markað þar sem ég hef lesið mikið að hryllingssögum um áhugaleysi íslenskra miðla á stuttmyndum. Við sjáum til.

Þetta var sem sagt mikilvæg helgi fyrir myndina. Kannski eins gott, því ég verð á landinu eftir örfáar vikur og það er enn nóg undirbúningsvinna eftir. Nú þarf ég hins vegar að hætta að skrifa því að hin vinnan bíður. Best að fara að þykjast fíla IBM tölvur, fyrir það ég fæ víst greitt.  


Microsoft Windows át diskinn minn!

Það er mikið talað um að hugbúnaði sé stolið. Fólk er kallað þjófar við fyrsta tækifæri. Það skiptir ekki máli hvort þú stelur Windows af búðarhillu eða netinu. Að stela er að stela og synd er synd. Þetta er auðvitað það sem hugbúnaðarfyrirtæki segja okkur. Það skiptir þau engu máli hvernig hugbúnaði er stolið. Þau "missa af" sölu og það er það sem skiptir máli.

Ég man að um miðjan síðasta áratug fékk fólk geisladisk með Windows 95 þegar það keypti tölvu. Ef það vildi eða þurfti að setja Windows upp upp á nýtt vað það ekki svo erfitt. Activation var ekki komin til sögunnar svo að maður þurfti ekki að útskýra fyrir Microsoft ef maður skipti um grafískt kort.

Eftir því sem milljarðarnir stöfluðust upp í Redmond, jókst móðursíkin. Við gætum verið að missa af peningum. Það eru allir að stela frá okkur. Hvernig getum við stoppað þetta? CD-Key hefur verið þekkt fyrirbæri í langan tíma. Virkaði ágætlega en var auðvelt að svindla á því, sérstaklega eftir að allir voru komnir á netið.

Svo kom Windows XP og allt í einu þurfti að aktivera það. Það var ekki nóg að kaupa diskinn, heldur þurfti að fá leyfi Microsoft til að nota innihaldið. Ef fólk var ekki með nettengingu gat það verið vandasamt. Ef Windows var ekki aktiverað innan 30 daga (minnir mig) lokaðist bara á það, notandinn var timplaður þjófur. Fólk gat ekki notað tölvuna sína. Þetta var ekki einu sinni eitthvað sem maður gerði einu sinni, heldu í hvert skipti sem eitthvað var keypt í tölvuna. Ef maður hafði gaman af því að kaupa nýtt dót, grafískt kort, hljóðkort, stærri disk, þá gat Windows ákveðið að hætta að virka, activation eða ekki, og maður mátti hringja í Microsoft og biðja um leyfi til að nota tölvuna aftur.

Þeir eru ekki dottnir af baki og nú er komið eitthvað sem heitir Genuine Advantage. Þetta er forrit sem hefur samband við Microsoft á hverjum degi til að ganga úr skugga um að það sé ekki ennþá lögleg útgáfa. Ég skil nafnið ekki, nema þeir séu farnir að sjá Windows sem seljendavæna vöru frekar en notendavæna. Ef það er "genuine advantage" af því að vera með þetta forrit sett upp vil ég endilega heyra það. 

Þegar vara eins og Windows nær að eigna sér markaðinn fara skrítnir hlutir að gerast. Windows er notað á um 90% allra tölva á vesturlöndum. Það er því ákveðið að allir noti Windows. Ég hef unnið við að selja og þjónusta IBM tölvur síðastliðin fimm ár. IBM ThinkPad er vinsæl Linux vél en IBM selur ekki ThinkPad án Windows. Ég hef ekki hugmynd um hvað ég hef oft verið spurður hvort ekki sé hægt að sleppa Windowsinu og fá einhvern pening endurgreiddan. Stutta svarið er nei. Langa svarið er nei, farðu og hættu að vera með þessa vitleysu. Það er nefnilega þannig að Windows er tekið alvarlega og önnur stýrikerfi ekki. Linux er fyrir forritara og nörda og Mac OS X er fyrir hönnuði og homma. Það var skylda um tíma að setja Windows á allar seldar tölvur (nema Apple) hér í Hollandi. Það var ekki hægt að fara í neina búð og kaupa gluggalausar tölvur. Tölvur sem voru settar saman á staðnum urðu að koma með Windows. Það var gengið út frá því að þú myndir nota Windows og svona var hægt að tryggja að þú borgaðir fyrir það.

Eins og ég minntist á hef ég unnið með IBM tölvur undanfarin ár. Sú var tíðin að kaupandinn fékk sérsmíðaðan Windows disk með tölvunni. Hann virkaði ekki á aðrar tölvur. Það hefði því mátt halda að lausnin væri komin. Windows diskur sem eingöngu er hægt að nota á tölvuna sem hann var hannaður fyrir. Ég get vottað að þessir diskar (kallaðir preload CDs) virka alls ekki á aðrar tölvur.

Þetta var samt ekki nóg fyrir Microsoft. Það var því komið með annað kerfi. Óuppsett Windows, preloadið, var sett á harða diskinn. Þetta virkar þannig að diskinum er skipt í tvennt. Segjum að hann sé 80GB. Þú sérð u.þ.b. 60GB þar sem Windows og önnur forrit eru. Þetta er C: drifið. Hvar eru hin 15-20 gígabætin? Þau eru falin og þú getur ekki notað þau. Þar eru Windows diskarnir þínir. IBM og Microsoft segja að þetta sé ekkert mál því ef þú þarft að setja upp Windows aftur potarðu bara í ThinkVantage takkann (F11 virkar líka) og þú getur sett upp Windows frá grunni. Það er ekkert minnst á að þér er seld tölva með 80GB en aðeins 60GB eru sjáanleg. Er það ekki að stela? Svo ef harði diskurinn deyr er Windows líka dáið. Þú getur keypt nýjan harðan disk en það er ekkert Windows á honum. Hvað nú? Hringja í IBM? Þeir hjálpa þér ekki. Þetta er Microsoft vandamál. Hringja í Microsoft? Þjónar engum tilgangi, þetta er OEM útgáfa, talaðu við IBM. Nú er tvennt sem hægt er að gera. Kaupa Windows aftur þrátt fyrir að hafa borgað fyrir það þegar tölvan var keypt, eða fara á netið og finna ólöglega útgáfu.

Ég var Windows notandi í rúm 10 ár og er reyndar enn þar sem ég er ennþá að vinna við þetta IBM dæmi. Ég notaði þetta af því að allir aðrir gerðu það. Ekki að maður sé endilega að elta fjöldann, heldur eð þetta bara það sem maður gerir. Þú borðar, sefur, vinnur og notar Windows.

Ég skil ekki lengur hvað er svo spennandi við Windows að fólk leggi á sig allt það vesen sem fylgir því þegar Linux útgáfur eins og Ubuntu og fyrirtæki eins og Apple eru til. Það er sennilega ekki af því að þetta er þeirra val, heldur er búið að velja fyrir okkur.


Föt í Gammeldag

Stuttmyndin. Undirbúningur er í gangi. Íslenskir bloggarar hafa talað og tungumálið er að komast á hreint. Ég er búinn að ákveða mig á hvaða tungumáli hún verður, en ég þarf bara að sannfæra sjálfan mig áður en ég geri það opinbert.

Hitt er aftur annað mál og alvarlegra. Mikið af myndinni gerist fyrr á öldum. Það þýðir því ekki að mæta í gallabuxum með tyggjó. Ég er ekki að segja að fólk þurfi að vera í peysufötum, en 1850 þarf að líta út eins og 1850. Það er hér sem ég hef rekist á hvað getur verið erfitt að undirbúa kvikmynd án þess að vera á staðnum sjálfur. Netið hefur breytt heiminum en það hefur ekki komið í staðinn fyrir mannleg samskipti.

Brýnasta verkefni á næstu vikum er að sjá til þess að fólk, staðir og hlutir líti út eins og þeir hefðu gert á þeim tíma sem myndin gerist. Ég vona að lausn verði fundin áður en ég kem til landsins, og ef ekki, þá vona ég að mér takist að negla það á þeim dögum sem ég hef áður en einhver öskrar ACTION!


Rigning er góð

Mikið öfunda ég íslendinga sem kvarta yfir rigningu og haustveðri. Hér í útlandinu er ekki kalt, 30 stig í svefnherberginu. Ég myndi sofa annars staðar en þetta er sennilega svalasti staðurinn í húsinu þrátt fyrir allt. Hitastigið úti fer kannski niður um 2-3 gráður þegar myrkur skellur á en það er svo lygnt að það skiptir engu þó maður opni alla glugga.

Það er hægt að klæða af sér kulda og regn, en hvað gerir maður í svona hita þegar kalt bað er eini staðurinn sem líft er á? Ekki get ég sofið þar í alla nótt?


Bönnum skegg!!!

VARÚÐ - móðgandi færsla í uppsiglingu...

Það er bjánalegt að múslímar gangi um öll vesturlönd öskrandi "Alla is greip". Það er fyrir neðan allar hellur að þetta fólk troði sinni trú (muna að trú er sannfæring, ekki sannleikur) og gamaldags hefðum inn á okkur upplýstu vesturlandabúana. Við fórum í gegn um okkar ofstækistímabil fyrir um 700 árum síðan og nenni ég ekki að gera það aftur.

Það virðist eins og allir múslímar gangi um í slopp og með skegg, alskegg eða yfirvararskegg (konur hið síðarnefnda yfirleitt) og geri ég því ráð fyrir að þetta sé eitthvað sem Múhameð sagði að ætti að gera. Það er frekar fíflalegt að fara eftir svoleiðis. Það er eins og að klæðast Gaultier og Gucci fötum árið 3286. Það er einfaldlega orðið gamaldags og því kominn tími til að kaupa ný föt og fara í klippingu.

Þetta með slæður og búrkur er sennilega af því að múðslímskir karlmenn treysta náunganum ekki. Konan mín er mín og ef enginn sér hvað hún er flott reynir enginn við hana. Ég ætla sko ekki að treysta henni til að segja "nei kríp farðu" við viðreyninginn. Nei, ég loka hana af frá heiminum og allt er í góðu. Spurning af hverju múðslímskir karlmenn eru ekki látnir ganga í fíflalegum fötum trúarinnar vegna.

Þessi færsla er orðin allt of pólitískt röng, við getum auðvitað ekki talað illa um múðslíma og aðra "minnimáttarhópa". Þeir geta þó talað illa um okkur. Hvað þýðir það? Að við séum gáfaðri og brosum góðlátlega að þessari vitleysu? Af hverju þurfum við alltaf að bera virðingu fyrir þeim en þeir ekki fyrir okkur (og eigin kvenfólki)? Fattettekki.

PS. Veit þetta voru konur að krefjast slæðunnar, en það sýnir bara hvað þetta fólk er heilaþvegið af trúarleiðtogum.
mbl.is Krefjast þess að stúlkur verði skyldaðar til að ganga með slæðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stormur í vatnsglasi...

1. Reality Check. Það er alveg á hreinu að stærsta ógn sem vesturlandabúar búa við eru hryðjuverk. Allir verða að standa saman og vera á varðbergi, annars ná þeir að snúa á okkur. Þetta er allavega það sem maður á að trúa. Vissulega eru hryðjuverk vandamál, en þau eru illilega útblásið vandamál. Það er spurning með að skoða hvað hættan sé í raun mikil. Hvað deyja margir af völdum hryðjuverka að miðausturlöndum undanskildum? Er vandamálið eins slæmt og okkur er talin trú um?

2.  Mannréttindi. Merkilegt að það sem þessi nefnd á vegum hins mikla Evrópusambands sá mest að í íslenskri stjórnsýslu er að það er ólöglegt að svipta fólk mannréttindum. Ef einhver er grunaður um að vera viðriðinn hryðjuverk má ekki stinga honum í steininn eins lengi og einhverjum sýnist. Hann á rétt á réttarhöldum og að málið hans fari í gegn um dómskerfið eins og aðrir grunaðir. Það er merkilegt að framleiðendur barnakláms eiga meiri rétt erlendis en þeir sem hugsanlega hafa eitthvað með hryðjuverk að gera. Ég vona að íslendingar láti ekki ana sér út í einhvert stalíniskt stjórnarfar svo við getum "varið okkur" fyrir hættu sem kannski er og kannski ekki en stórýkt í öllu falli.

3. Björn Bjarnason. Hef ekkert um manninn að segja nema að hann reyndi að setja á stofn íslenskan her og nú þetta. Getur ekki einhver gefið honum einhvern slatta af tölvuleikjum eins og Civilization, Call of Duty of þess háttar svo hann geti svalað þessari þörf sinni án þess að draga okkur hin inn í þetta? Það getur vel verið að hann sé fínn ráðherra að öðru leyti, ekki hugmynd, svo ég fer ekki lengra út í það.

4. Sjálfstæði? Íslendingar börðust í aldir fyrir sjálfstæði. Þó er eins og það sé allt gleymt. Það er alveg sama hvers konar möppudýralæti og paranoia koma frá útlöndum, og þá sérstaklega Brussel, við étum það allt upp. Allt nema áfengið, sem enn er selt eftir úreltum góðtemplarareglum.  Hvenær ætla íslendingar að skilja að þeir eru fínir, landið er kúl og það er óþarfi að vera eins og allir hinir?

5. Olía og Guð. Er það ekki það sem málið snýst um? Vesturlönd þurfa olíu. Olían er að klárast og það litla sem eftir er, er undir fótum múslíma. Kína er að verða keppinautur um olíuna svo að nú er komin spenna í þetta. Vesturlönd (og þá helst Bandaríkin) finnst þau þurfa að tryggja að þau hafi óhindraðan aðgang að þeirri olíu sem eftir er. Það þýðir ekkert að ráðast á lönd og segja almúganum að þetta sé þeim fyrir bestu, að verið sé að tryggja þeim sómasamlegt líf í náinni framtíð. Fólk er yfir höfuð nógu samviskusamt til að finnast svoleiðis átroðningur óafsakanlegur. Að fara í stríð til að halda náunganum fátækum er ekki eitthvað sem fólk sættir sig við. Þá er bara eitt að gera, láta fólki finnast því vera ógnað. Allir vilja verja sig. Það vill svo skemmtilega til að þeir sem eiga olíuna eru múslímar og þeir hafa slæmt orð á sér. Þeir voru "óvinurinn" gegn um allar miðaldirnar og nokkrir fáráðir hafa gert mikið til að skemma orðstýr Islam á liðnum árum. Trúin er því notuð, eina ferðina enn, sem afsökun til að fara í stríð vegna græðgi fárra manna. 

over+out 


mbl.is Lagt til að stofnuð verði þjóðaröryggisdeild á Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Herinn að segja bless?

Ég geri ráð fyrir að ernirnir gráti það ekki þegar herinn yfirgefur landið.

Fyrst herinn er til umræðu, hvað átti annars að gera við gulu húsin sem eftir sitja? Hér er mín hugmynd:

Ég keyrði einhvern tíma í gegn um þorp varnarliðsins. Það var eins og að vera kominn í frí til Bandaríkjanna. Allt var öðruvísi. Umferðarljósin, kóksjálfsalarnir, göturnar. Þetta var eins og sixties America. Hvernig væri að lappa upp á þetta og setja upp risastórt kaldastríðs safn? 


mbl.is Herþotum flogið í lágflugi yfir Reykhólahreppi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hversu útbreytt er mansal?

Ég þýddi holllenska grein í gær þar sem koma fyrir nokkrar ágiskanir og tölur um útbreiðslu mansals í heiminum. Áhugasamir geta fundið greinina hér.

mbl.is Krefjast áætlunar um baráttuna við mansal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfuðborg Skotlands, fyrr og síðar

Ég var víst búinn að lofa að setja inn einhverjar Skotlandsmyndir. Hef ekkert í hyggju að svíkja það, en hér er ein og hálf svona til að væta kverkarnar. Ó hvað það minnir mig á flöskuna af Ben Nevis sem tæmdist svo ljúflega... allavega:

Vorið 2006

Voeið 2006

 

Vorið 1907

Vorið 1907 

Og svo ein úr sveitinni. Hélt að linsuflerinn væri sniðugur en hef skipt um skoðun síðan.

Loch Manekki 


Kvikmynd um það þegar slefandi gráðungur blekkir, misþyrmir og auðmýkir...?

Voðaleg fyrirsögn. Fann þetta á hollenskri síðu sem berst gegn mansali, þ.á.m. innflutningi fallegra austur-evrópskra táningsstelpna sem gaman er að leika sér að. Ég hef gengið með þá hugmynd lengi að gera heimildamynd um þetta málefni. Maður þarf að vanda sig og reyna að koma sér ekki í vandræði. Leiðinlegt að finna sig inni í sundi með pissóðum pimp beð byssu eða hníf. En eins og ég segi er þetta málefni sem þarf að skoða betur, ræða og reyna að vinna gegn.

Þýðingin er mín svo ef þetta hljómar bjánalega er það mér að kenna:
Það er ekki vitað nákvæmlega hvað mansal er útbreitt. Það er áætlað að milli 700.000 og 2.000.000 konur og börn séu árlega seld, þ.á.m. eru 175.000-200.000 konur og börn frá austur Evrópu seld beint í kynlífsiðnaðinn í vestur Evrópu. Gert er ráð fyrir að um 200 milljónir manna lifi í þrældómi í heiminum í dag.

Þessar tölur eru fengnar úr ritinu "Nationaal Rapporteur Mensenhandel (2002, bls. 6)" og eru áætlun byggð á skýrslum ýmissa hjálparstofnana. Það er auðvitað erfitt að sanna þær þar sem þessi starfsemi fer yfirleitt fram bak við lokaðar dyr þar sem yfirvöld sjá ekki til. Af ýmsum ástæðum er líka sjaldgæft að fórnarlömb mansals komi fram og biðji um aðstoð eða segi sögu sína.

Utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna gefur árlega út skýrslu, The TIP Report (Trafficking In Persons Report), þar sem alþjóðlegt mansal er tekið fyrir og lönd eru skoðuð með tilliti til þess hvernig þau taka á mansali. Í 2004 útgáfunni er gert ráð fyrir að 600.000-800.000 manns sé flutt á milli landa árlega. Áttatíu prósent eru konur og 70% þeirra lenda í kynlífsiðnaði. Giskað er á að tala fólks sem selt er innan eigin landamæra sé tvær til fjórar milljónir á ári.

Eins og sagði er ómögulegt að sanna þessar tölur. Þær geta verið lægri eða hærri, en það er engin spurning að þetta er risavaxið vandamál og blettur á samvisku mannkyns.

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband