Óttinn er ekki svo slæmur

Fyrir rúmu ári stóð ég uppi á þaki fjölbýlishúss og horfði niður. Það var ekkert öryggisnet, en ég ákvað samt að stökkva. Ég er ennþá í fallinu og veit ekki hvort ég muni lenda á fótunum. Það verður að koma í ljós.

Líf okkar er ekki svo langt. Klisja, en það er bara svoleiðis. Flest látum við eins og við höfum ótakmarkaðan tíma. Það kemur þó að því að lokastundin nálgast og þá getur verið erfitt að horfa til baka. Hvað gerði ég? Var líf mitt einhvers virði? Skil ég Villi í Blafjöllumeitthvað eftir mig? Skiptir það einhvern einhverju máli hvort ég hafi lifað eða ekki? Börnin manns eru yfirleitt fegin að við höfum verið til og þar með gert þeim mögulegt að vera til, en lífið gengur ekki bara út á að vera útungunarvélar.

Það er gott að geta skapað, hvort sem það er í frístundum eða ekki. Það er örugglega gaman að hafa skapað merkilega hluti og sjá börn manns komast á aldur og uppgötva hvað "sá gamli/gamla" gerði. Það hlýtur að vera frábær tilfinning að gramsa í gamla dótinu uppi á háalofti og uppgötva óútgefna bók eftir afa sinn, eða kannski bara vel skrifuð bréf eða greinar. Þetta gat hann þá, hugsar maður og veltir fyrir sér því sem maður vissi ekki um gamla manninn. Maður fer aftur í tímann og kynnist fólki sem er farið.

Þegar ég kláraði Svarta Sandinn um daginn, hugsaði ég með mér, ef ég dey á morgun mun Mats ekki þekkja mig. Hann mun ekki muna eftir pabba sínum. Allt sem hann hefur eru ljósmyndir og það sem aðrir hafa sagt honum. Kannski hann myndi kynnast mér betur ef hann fyndi eintak af myndinni uppi á hálofti eftir 20 ár. En ég er ekkert að spá í að hrökkva alveg strax.

Það er gaman að lesa um framtak Ólafar. Ég vona að sem flestir finni þetta eitthvað sem gerir líf þeirra pínulítið meira virði með því að stökkva fram að brúninni, hvort sem það er gert með öryggisneti eða ekki. 


mbl.is Markmiðið að stíga inn í óttann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Góð pæling.

Gunnar Helgi Eysteinsson, 12.2.2008 kl. 11:48

2 Smámynd: Villi Asgeirsson

Takk fyrir það Gunnar. Maður rembist.

Villi Asgeirsson, 12.2.2008 kl. 12:13

3 Smámynd: Gunnar Helgi Eysteinsson

Ég er búinn að horfa á myndina (aftur) og varð ekki fyrir vonbrigðum.
Ef það hefði verið ég sem gerði þessa mynd væri ég ótrúlega stoltur.

Gunnar Helgi Eysteinsson, 12.2.2008 kl. 12:30

4 Smámynd: Villi Asgeirsson

Þannig að síðustu breytingarnar voru þess virði? Ég er alveg stoltur, en maður er aldrei 100% ánægður með eigin afurðir. Það væri þá lítils virði að reyna að gera betur næst.

Villi Asgeirsson, 12.2.2008 kl. 13:19

5 identicon

Flottur pistill.... Ég held að stærsta "áhættan" í lífinu sé að upplifa eftirsjá sem gömul manneskja yfir því að hafa ekki prófað að fylgja draumum sínum. Betra að prófa og mistakast, heldur en leyfa lífinu bara að fljóta hjá... en best náttúrulega að prófa að takast vel upp...

Auður H Ingólfsdóttir (IP-tala skráð) 12.2.2008 kl. 13:58

6 Smámynd: Villi Asgeirsson

Það er nóg til að gömlu, bitru fólki. Það er sennilega oftast biturt vegna þess sem það gerði ekki, frekar en vegna þess sem aðrir gerðu því. Maður getur alltaf komist frá þeim sem koma illa fram við mann (nema þegar manni er rænt, eða skattinum), en maður kemst aldrei undan sjálfum sér.

Villi Asgeirsson, 12.2.2008 kl. 16:29

7 Smámynd: Steinunn Helga Sigurðardóttir

flottur pistill !

hafdu fallegan dag !

Bless

steina

Steinunn Helga Sigurðardóttir, 13.2.2008 kl. 16:16

8 Smámynd: Eva Benjamínsdóttir

Gróa gamla var á Elliheimilinu Grund þegar hún uppgötvaði að það eina sem hún sá eftir í lífinu var að hafa ekki gert það.

Afhverju gerðir þú það ekki, spurði ég.

Af því ég þorði ekki, sagði Gróa og þurfti að bíta í það súra epli að fara til himnafeðranna - hrein mey afar ósátt.

There is nothing to it but to do it! Gangi vel, kv

Eva Benjamínsdóttir, 14.2.2008 kl. 21:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband