Útlit

Glöggir gestir sem eru ekki að líta við í fyrsta sinn hafa sennilega tekið eftir að bloggið er breytt. Ég valdi annað þema og breytti því smá til að fullnægja mínum óskum. Það væri samt gaman ef Mogginn setti inn fleiri þemu. Þau eru orðin ansi gömul og ekki mikið af þeim. Mér finnst allir vera að nota sömu 2-3 útlit.

Þess má geta að myndin af mávunum sem "prýðir" hausinn var tekin af mér í Oban, Skotlandi í maí (frekar en júní) 2006. Það var rigning. Það er alltaf rigning í Oban. Við leituðum skjóls í viskíbúð og smökkuðum hið ofurljúffenga Ben Nevis, sem drýpur að hverju strái í nágrenni Fort William á vesturströndinni, norður af Oban.

Að lokum má geta þess að ég var að setja inn Overload hér til hliðar. Þetta er lag af nýju plötu Uriah Heep, Wake the Sleeper. Þetta verður vafalaust í myndinni okkar í haust.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Einhvertíman kom ég þar en man nú lítið hvernig það var. Það er svo langt síðan. Þetta er flott hjá þér. Ég breytti minni en kann ekki að setja mynd yfir allan hausinn. Enginn nenfdi neitt við mig.

Jórunn Sigurbergsdóttir , 4.7.2008 kl. 20:57

2 identicon

Cool mynd, vildi að ég kynni að setja mynd sem nær yfir allan blogghausinn....

alva (IP-tala skráð) 7.7.2008 kl. 01:32

3 Smámynd: Villi Asgeirsson

Það er ekki svo erfitt að setja inn mynd sem passar. Í þemastillingum kíkir þú á hvað hausinn er hár. Minnir að minn sé 115 pixlar. Setur síðuna á fasta breidd. Minnir að mín sé 815 pixlar. Velur svo mynd, kroppar hana í Photoshop eða öðru forriti svo að hún sé 115x815 og setur hana inn sen haus. Svo einfalt er það.

Villi Asgeirsson, 8.7.2008 kl. 07:17

4 Smámynd: Gunnhildur Ólafsdóttir

Fyrst þú nefnir útlit. Þá verð ég að segja - að þú ert fjári unglegur. Einnig er hentugt að vita þetta með hausinn. Ef allt skyldi stefna í harðindi.

Gunnhildur Ólafsdóttir, 8.7.2008 kl. 20:35

5 Smámynd: Villi Asgeirsson

Gunnhildur, ég held það sé vegna þess að ég er svo seinþroska.

Villi Asgeirsson, 9.7.2008 kl. 04:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband