Engar íslenskar kvikmyndir á netinu?

Fyrir 2-3 árum fékk ég stórsnjalla hugmynd, að selja íslenskar kvikmyndir á netinu. Ég setti mig í samband við kvikmyndafyrirtæki sem hafa framleitt vinsælustu íslensku kvikmyndirnar á undanförnum árum og áratugum. Yfirleitt fékk ég ekki svar, en ef þau komu voru þau ekki mjög jákvæð. Þessi á höfundarréttinn, við erum ekki tilbúin í svona.

Oft er kastað til hendinni þegar Íslenskar kvikmyndir eru settar á DVD diska. Myndin er annað hvort í "full screen" þótt hún hafi ekki verið sýnd þannig í bíó. Ef hún er wide screen er það oft plat, því hún er í raun full screen með svörtum röndum að ofan og neðan. Upplausnin er því töluvert lægri en ef fólk hefði verið að vanda sig. Svo er oft sama og ekkert aukaefni. Þetta eru því diskar svipaðir útsöludiskunum erlendis, sem eru að seljast á 3-5 evrur og 5-fyrir-10 evrur.

Hugmyndin var að taka hverja mynd fyrir sig, setja hana á stafrænt form ef ekki var til góð útgáfa af henni og setja eitthvað aukaefni á diskinn. Það hefði getað verið eitthvað einfalt, eins og viðtöl, trailerar og fleira. Myndin yrði svo textuð á helstu evrópumálin. Diskarnir yrðu svo seldir gegn um netið til íslendinga og útlendinga, hverra þeirra sem hefðu áhuga á íslenskri kvikmyndagerð. 4-6 titlar yrðu gefnir út ár hvert. Einfaldari hugmynd var bara að selja diskana og vera ekki með neitt vesen.

Kannski var þetta bjánaleg hugmynd, en ég er ekki svo viss. Það er allavega ótrúlega lítið úrval af íslenskum diskum í búðum og á netinu. 


mbl.is Eldra fólk kaupir á netinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Alveg hjartanlega sammála þér. Tjékkaðu á allirmed.com

Arnar Ingvarsson (IP-tala skráð) 24.4.2008 kl. 12:06

2 Smámynd: Jórunn Sigurbergsdóttir

Nei,þetta er ekki bjánaleg hugmynd. Hún er góð. Gleðilegt sumar.

Jórunn Sigurbergsdóttir , 24.4.2008 kl. 23:23

3 Smámynd: Lára Hanna Einarsdóttir

Mér heyrist þetta vera mjög góð hugmynd - að minnsta kosti eins og þú setur hana fram.

Lára Hanna Einarsdóttir, 25.4.2008 kl. 12:46

4 Smámynd: Nanna Katrín Kristjánsdóttir

Mér heyrist hún góð, en kannski pínu risky vegna ólöglegra dreifingar á myndum.

Nanna Katrín Kristjánsdóttir, 25.4.2008 kl. 12:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband